Heilt og sælt veri fólkið!
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Fáskrúðsfjarðarhlaupið. Þið skráið ykkur einfaldlega með því að senda póst á netfangið birnabaldurs@gmail.com eða hringja í síma 860-8108. Við skráningu þarf að taka fram fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og hvora vegalengdina (10 eða 21 km) er ætlunin að hlaupa. Ef um hlaupasveit er að ræða þá þarf einnig að gefa upp nafn sveitarinnar og fjölda þátttakenda í sveit.
Hér eru svo nánari upplýsingar um Fáskrúðsfjarðarhlaupið 2011:
Almennt um hlaupið:
Fáskrúðsfjarðarhlaupið er haldið í fimmta sinn í ár í tengslum við hátíðina „Franska daga“ á Fáskrúðsfirði. Auk þess að vera heilsubót í fögru umhverfi er með hlaupinu vakin athygli á sögu og endurbyggingu Franska spítalans.
Tímasetning:
Föstudagurinn 22. júlí kl. 17. Hlaupið er ræst við Franska spítalann við Hafnargötu í Búðaþorpi í Fáskrúðsfirði.
Skráning og mæting:
Skráning á netfanginu birnabaldurs@gmail.com og mæting er við Franska spítalann við Hafnargötu kl. 16:30.
Hlaupaleið:
Hlaupið er frá Franska spítalanum við Hafnargötu og út með norðurströnd Fáskrúðsfjarðar. Hlaupaleiðin er malbikuð en möl út við vegarbrún. Tvær vegalengdir eru í boði, 21 og 10 km. Í hálfa maraþoninu er hlaupið út að Kolfreyjustað og til baka en í 10 km hlaupinu er snúið við nálægt Brimnesi.
Tímataka og drykkjarstöðvar:
Tímataka er á báðum vegalengdum. Í 10 km hlaupinu er drykkjarstöð við Brimnes (5km) þar sem snúið er við. Í hálfa maraþoninu eru þrjár drykkjarstöðvar; við Brimnes (5km), við Kolfreyjustað (10km) þar sem snúið er við og svo aftur við Brimnes (15km). Boðið verður upp á drykki og hressingu í marki að hlaupi loknu.
Verðlaun:
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu sæti karla og kvenna og fyrir fyrstu hlaupasveit í báðum vegalengdum. Allir þátttakendur fá stuttermabol.
Þátttökugjald:
Þátttökugjald í 21 km hlaupi er 1000 kr en 500 kr í 10 km hlaupinu og fyrir hvern þátttakanda í hlaupasveit.
Meira um hlaupið:
Í ár er Fáskrúðsfjarðarhlaupið með öðru sniði en áður. Áfram verður hlaupið frá Franska spítalanum þó spítalinn sé ekki lengur sunnan fjarðarins í Hafnarnesi. Nú stendur spítalinn við Hafnargötu í Búðaþorpi og þar verður hlaupið ræst. Sem fyrr leggjum við áherslu á að sem flestir geti tekið þátt í hlaupinu og því verður, líkt og áður, hægt að mynda hlaupasveitir á báðum leiðum. Mikið frjálsræði er í þessu sveitahlaupi, fjöldi í sveit er frjáls og sveitir sjá sjálfar um að skipta vegalengdinni á milli sín.
Öryggi:
Almennt er lítil umferð ökutækja á hlaupaleiðinni en þó eru þátttakendur minntir á að þeir hlaupa á eigin ábyrgð og hvattir til að nota skærlitan fatnað til að auka öryggi.
Styrktaraðilar:
Styrktaraðilar hlaupsins í ár eru: Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði, Samkaup-Strax á Fáskrúðsfirði, Launafl á Reyðarfirði, Vífilfell hf. og Gláma-Kím arkitektastofa.